Rétt umhirða heldur skartinu fallegu og hefur áhrif á endingu þeirra.
Æskilegt er að fjarlægða skartgripi áður en farið er í sturtu, sund, gufu, líkamsrækt eða fyrir svefn.
Forðastu snertingu við ilmvatn, krem og hreinsiefni, og leyfðu slíku að þorna áður en þú setur skartið á þig.
Geymdu skartið á þurrum og köldum stað, helst í öskju eða mjúkum skartgripa poka.
Fljótlegar leiðbeiningar um umhirðu:
Fljótlegar leiðbeiningar um umhirðu:
- Fjarlægðu skart áður en farið er í vatn eða fyrir svefn.
- Leyfðu ilmvatni, kremum og snyrtivörum að þorna áður en skartið er sett á.
- Þurrkaðu það varlega með mjúkum klút eftir notkun.
- Geymdu það í lokuðu hólfi eða öskju til að verja gegn raka og súrefni.