Rúnir

Skartgripir sem draga innblástur úr fornu rúnaletri, þar sem íslensk arfleifð stendur í fyrirrúmi.

Rúnir

______________________________________________

Rúnirnar voru eitt sinn notaðar til að skrá sögur, galdra og tákn, og bera enn með sér kraft sem hver og einn getur túlkað á sinn hátt. 

Hér fyrir neðan er hægt að lesa um þær rúnir sem eru í skartgripalínunni.

_______________________________

Othola

HEIMILI • RÆTUR • ARFLEIFÐ

Othola er rún heimilisins, uppruna og arfleiðar. Hún talar til þess sem mótar okkur, rótanna, sjálfsmyndarinnar og þeirrar djúpu tilfinningar að tilheyra.

Othola minnir okkur á að heiðra rætur okkar af ásetningi, að halda í það sem styrkir okkur, sleppa því sem gerir það ekki og mótar arfleið sem er sannarlega okkar.

Á íslensku má þýða heitið sem Óðal og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastöfunum:

O • Ó Ö

Versla Othola

Uruz

LÍFSKRAFTUR • STYRKUR • VILJI

Uruz er rún hins óbeislaða lífskrafts: styrks, úthalds og viljans til að vaxa. Hún talar til endurheimtar, sjálfstrausts og hugrekkis sem kviknar þegar við mætum lífinu af hreinskilni.

Uruz minnir okkar á að styrkur verður til með endurtekningu, aga og þolinmæði. Hún hvetur okkur til að beina kraftinum í eitthvað varanlegt svo hann verður sem mestur.

Á íslensku má þýða heitið sem Úruxi og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastöfunum:

U • Ú

Versla uruz

Gebo

GJÖF • TRAUST • JAFNVÆGI

Gebo er rún tengsla sem byggjast á jafnvægi, trausti og vináttu. Hún minnir okkur á að sannar gjafir birtast ekki aðeins í hlutum, heldur líka í samhljómi og stuðningi.

Gebo býður þér að gefa og þiggja af ásetningu, að gefa af örlæti án þess að tapa sjálfri þér, þiggja án sektarkenndar og velja tengsl þar sem virðing flæðir í báðar áttir.

Á íslensku má þýða heitið sem gjöf og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastafinum:

G

versla Gebo

Ansuz

RÖDD • VISKA • LEIÐSÖGN

Ansuz er rún hins talaða orðs, skilaboða, lærdóms og andardráttarins á bak við röddina. Hún talar til samskipta, innsæis og leiðsagnar, oft sem augnablik af skýrleika.

Ansuz minnir þig á að hlusta vel og tala af ásetningi, velja orð sem samræmast sannleikanum, spyrja réttu spurninganna og taka eftir því sem kallar á svar innra með þér.

Á íslensku má þýða heitið sem Æsir eða Goð og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastöfunum:

A Á Æ

versla ANSUZ

Tiwaz

RÉTTLÆTI • HEIÐUR • HUGREKKI

Tiwaz er rún styrks sem byggir á gildum, réttlæti, heilindum og hugrekki. Hún talar til sanngjarnar forystu, skýrra marka og þess að velja hið rétta, jafnvel þó það kosti mann eitthvað.

Tiwaz minnir þig á að bregðast við af hreinum ásetningi, standa við orð þín, fylgja gildum þínum og muna að sannur sigur krefst stundum fórnar.

Á íslensku má þýða heitið sem Týr og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastafnum:

T

Versla Tiwaz

Dagaz

DAGUR • SKÝRLEIKI • UMBREYTING

Dagaz er rún umbreytingarinnar, þegar nótt verður að degi, óvissa verður að skýrleika og kyrrstaða verður að hreyfingu. Hún talar til vakningar, innsæis og augnabliksins þegar ný leið opnast.

Dagaz hvetur þig til að sjá hlutina skýrt, stíga fram með nýja sýn og treysta breytingunni sem leiðir þig nær sannleikanum.

Á íslensku má þýða heitið sem dagur og hljóð rúnarinnar samsvarar helst nútímastafinum:

D

versla dagaz
Rúnirnar

Uppruni rúnanna

Rúnir eru fornt norrænt stafróf sem var mótað til að rista í efni náttúrunnar og gert til að endast. Rúnir voru meira en aðeins bókstafir, en með tímanum urðu þær einnig tákn fyrir minningar, áform og dýpri merkingu, leið til að marka það sem skiptir máli og gera hið ósýnilega sýnilegt. Orðið rún þýðir hvísl, leyndarmál eða dulúð.

Í Hávamáli sem er hluti af Eddu kvæðunum, segir Óðinn frá því hvernig hann öðlaðist þekkingu á rúnunum í gegnum þolraun. Hann hékk með stungusár í níu nætur á vind köldu tré og birtust þær honum þegar hann féll úr trénu. Sagan sýnir rúnirnar sem eitthvað sem er áunnið, ekki gefið. Viska sem fæst með fórn og skilur eftir sig varanleg spor.

Tréð er ekki nefnt með nafni í Hávamálum, en er oft talið vera Yggdrasill, heims tréð sem tengir heimanna níu. Frá raun Óðins víkkar sagan í Völuspá og leiðir okkur að Urðarbrunni sem undir Yggdrasil.

Í Völuspá stendur Yggdrasill sígrænt yfir Urðarbrunni. Þar sitja nornirnar Urður, Verðandi og Skuld og móta líf og örlög allra vera með þræði sínum.

Rúnirnar bera í sér krafta og anda nornanna, heimanna níu og alls þess sem liggur þar á milli. Þær eru dýpri en orð eða merki á yfirborði. Þær tákna minningar, örlög og mynstrin undir hversdagslífinu, þess sem við erfum, það sem við veljum og það sem við verðum.