Þjónustuskilmálar
1. Gildissvið
Þessir skilmálar gilda um sölu Dúfu á vörum til neytenda í netverslun Dúfu.
Með því að leggja inn pöntun staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér og samþykkt skilmálana.
Um viðskiptin gilda íslensk lög, meðal annars lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga nr. 16/2016, eftir því sem við á.
Ef ósamræmi er á milli íslenskrar og enskrar útgáfu skilmálanna gildir íslenska útgáfan.
2. Almenn ákvæði
Dúfa áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, tæknilegra villna eða ef vara er ekki lengur til á lager.
Dúfa áskilur sér einnig rétt til að breyta eða hætta sölu vara án fyrirvara.
Ef villa kemur í ljós eftir að pöntun hefur verið lögð inn mun Dúfa hafa samband við viðskiptavin eins fljótt og auðið er og bjóða viðeigandi lausn, svo sem endurgreiðslu eða val á annarri vöru.
Dúfa áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis við sérstakar aðstæður.
Dúfa leggur áherslu á að upplýsingar á vefnum séu réttar, en áskilur sér rétt til að leiðrétta villur sem kunna að koma upp, til dæmis vegna tæknilegra vandamála, verð villna, rangra birtinga eða tímabundinna truflana á þjónustu.
Dúfa ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika utan eðlilegrar stjórnunar Dúfu, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, truflana hjá flutningsaðilum, bilana í greiðslu- eða upplýsingakerfum, stjórnvaldsákvarðana eða annarra sambærilegra atvika.
3. Upplýsingar um vöru
Dúfa leggur áherslu á að veita réttar og skýrar upplýsingar um vörur í netversluninni, þar á meðal um efni, stærðir, lit, umhirðu og aðra helstu eiginleika.
Stærðir og mál eru gefin upp eins nákvæmlega og kostur er, en smávægileg frávik geta komið fram. Litir geta birst mismunandi eftir skjám, birtuskilyrðum og myndbirtingu.
Allar myndir, lýsingar og upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur og aðrar tæknilegar villur.
4. Verð
Öll verð í netverslun Dúfu eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.
Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram og birtist í greiðsluferli áður en pöntun er staðfest.
Dúfa áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur í verðum, vörulýsingum, myndum eða öðrum upplýsingum á vefnum.
Afsláttarkóðar og tilboð gilda aðeins á því tímabili og með þeim skilyrðum sem tilgreind eru hverju sinni. Dúfa áskilur sér rétt til að leiðrétta eða afturkalla afsláttarkóða ef um augljósa villu, misnotkun eða tæknilega bilun er að ræða. Afslættir gilda ekki afturvirkt á áður gerðar pantanir nema annað sé sérstaklega tekið fram.
5. Greiðslur
Hægt er að greiða fyrir vörur í netversluninni með kredit- og debetkortum.
Allar greiðslur með þessum kortum fara örugglega í gegnum Teya greiðslugátt í samstarfi við Shopify. Dúfa varðveitir ekki kortaupplýsingar viðskiptavina.
Afsláttarkóðar og tilboð gilda aðeins á því tímabili og með þeim skilyrðum sem tilgreind eru hverju sinni. Dúfa áskilur sér rétt til að leiðrétta eða afturkalla afsláttarkóða ef um augljósa villu, misnotkun eða tæknilega bilun er að ræða. Afslættir gilda ekki afturvirkt á áður gerðar pantanir nema annað sé sérstaklega tekið fram.
6. Vinnsla pantana
Allar pantanir eru venjulega afgreiddar og sendar innan 1–3 virkra daga frá því að pöntun berst.
Við reynum alltaf að afgreiða pantanir eins fljótt og hægt er miðað við aðstæður.
Ef varan er óvænt uppseld, þrátt fyrir að pöntun hafi verið staðfest, býðst viðskiptavinum endurgreiðsla eða val á annarri vöru í staðinn.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar við pöntun, þar á meðal nafn, netfang, símanúmer og afhendingarheimilisfang. Dúfa ber ekki ábyrgð á töfum eða kostnaði sem rekja má til rangra eða ófullnægjandi upplýsinga frá viðskiptavini.
7. Sendingarkostnaður og afhending vöru
Allar pantanir eru sendar með Póstinum, nema annað sé tekið fram.
Sendingarkostnaður bætist við vöruverð áður en greiðsla fer fram og birtist í greiðsluferli áður en pöntun er staðfest.
Dúfa ber ábyrgð á því að vara sé afhent í samræmi við pöntun. Ef vara glatast eða skemmist í flutningi áður en hún er afhent viðskiptavini, skal viðskiptavinur hafa samband við okkur á info@dufa.is svo hægt sé að kanna málið með flutningsaðila.
Eftir að vara hefur verið afhent viðskiptavini, eða gerð honum aðgengileg samkvæmt valinni afhendingarleið, ber viðskiptavinur ábyrgð á að sækja eða taka við sendingunni innan tilgreindra tímamarka.
Ef viðskiptavinur velur órekjanlega sendingarleið getur verið takmarkað hvaða upplýsingar liggja fyrir um afhendingu. Við aðstoðum þó alltaf við að kanna stöðu sendingar eftir fremsta megni.
Ef sending er ekki sótt innan tímamarka flutningsaðila og er send aftur til Dúfu, áskilur Dúfa sér rétt til að innheimta kostnað vegna endursendingar eða nýrrar afhendingar. Ef viðskiptavinur óskar eftir endurgreiðslu í stað nýrrar sendingar getur kostnaður sem fellur til vegna ósóttrar sendingar verið dreginn frá endurgreiðslu, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum.
8. Afhendingarmöguleikar innanlands
Dúfa býður upp á afhendingu með Póstinum samkvæmt þeim sendingarleiðum sem eru í boði í greiðsluferli hverju sinni.
Afhendingarmöguleikar geta meðal annars verið:
-
Sótt á pósthús
Viðskiptavinur fær tilkynningu þegar sendingin er komin á pósthús. -
Heimsending innanlands
Viðskiptavinur fær tilkynningu þegar sendingin er tilbúin til afhendingar. -
Afhending í póstbox
Viðskiptavinur fær tilkynningu með upplýsingum um afhendingu og getur sótt sendinguna í valið póstbox innan tilgreindra tímamarka.
Nánari upplýsingar um afhendingarmöguleika, staðsetningar póstboxa og gjaldskrá má finna á vef Póstsins.
9. Alþjóðlegar sendingar
Kostnaður vegna alþjóðlegra sendinga getur verið mismunandi eftir staðsetningu, þyngd sendingar og þeirri sendingarleið sem valin er.
Afhendingartími erlendis er breytilegur eftir landi, flutningsaðila, tollmeðferð og öðrum aðstæðum.
Dúfa ber ekki ábyrgð á tollum, innflutningsgjöldum, sköttum eða öðrum kostnaði sem getur fylgt alþjóðlegum sendingum. Slíkur kostnaður er á ábyrgð viðskiptavinar.
Ef þú hefur spurningar varðandi sendingar má hafa samband við okkur á info@dufa.is.
10. Skil og réttur til að falla frá kaupum
Viðskiptavinur hefur almennt 14 daga rétt til að falla frá kaupum á vöru sem keypt er í netverslun Dúfu, frá þeim degi sem varan er afhent. Neytandi hefur almennt rétt til að hætta við fjarsölukaup innan 14 daga án þess að gefa skýringu, enda sé vörunni skilað óskemmdri.
Til að nýta rétt til að falla frá kaupum þarf viðskiptavinur að tilkynna Dúfu um ákvörðun sína með tölvupósti á info@dufa.is innan 14 daga frá afhendingu. Vörunni skal síðan skilað án óþarfa tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að tilkynning var send.
Vara sem er skilað þarf að vera ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum, í sama ástandi og hún var afhent.
Kostnaður vegna endursendingar er á ábyrgð viðskiptavinar, nema vara sé gölluð eða röng.
Viðskiptavinur getur valið um endurgreiðslu eða að skipta vörunni út fyrir aðra vöru, eftir því sem við á og varan er til á lager.
11. Endurgreiðslur
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við upphafleg kaup, nema um annað sé samið.
Endurgreiðsla miðast við það verð sem viðskiptavinur greiddi fyrir vöruna.
Dúfa endurgreiðir vöruverð og, eftir því sem við á samkvæmt lögum, staðlaðan afhendingarkostnað. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð viðskiptavinar, nema vara sé gölluð eða röng.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist Dúfu og staðfest hefur verið að hún uppfylli skilyrði skila.
Dúfa áskilur sér rétt til að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist til baka eða viðskiptavinur hefur sýnt fram á að varan hafi verið send, eftir því hvort gerist fyrr og eftir því sem við á samkvæmt lögum.
12. Ástand skila vöru
Vara sem er skilað þarf að vera ónotuð, óskemmd og í upprunalegum og heilum umbúðum.
Af hreinlætisástæðum er almennt ekki tekið við skilum á eyrnalokkum sem hafa verið mátaðir eða notaðir. Eyrnalokkar sem skilað er þurfa að vera ónotaðir, óskemmdir og í upprunalegum umbúðum.
Ef vara hefur verið notuð, skemmd eða meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli, eiginleika og útlit hennar, áskilur Dúfa sér rétt til að lækka endurgreiðslu í samræmi við verðrýrnun vörunnar, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að pakka vöru tryggilega við endursendingu. Dúfa ber ekki ábyrgð á skemmdum sem verða á vöru vegna ófullnægjandi pökkunar við endursendingu.
Dúfa áskilur sér rétt til að hafna skilum ef vara er ekki í upprunalegu ástandi eða ef skilyrði skila eru ekki uppfyllt.
13. Gölluð eða röng vara
Ef vara reynist gölluð eða röng skal viðskiptavinur hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á info@dufa.is.
Gott er að senda myndir af vörunni og pöntunarnúmer með tölvupóstinum til að hraða afgreiðslu.
Ef vara reynist gölluð fer úrlausn eftir lögum um neytendakaup. Eftir atvikum getur viðskiptavinur átt rétt á úrbót, nýrri afhendingu, afslætti eða endurgreiðslu. Seljanda ber samkvæmt neytendalögum að afhenda vöru í umsömdu ástandi, gæðum og magni, og úrræði vegna galla ráðast af atvikum hverju sinni.
Dúfa áskilur sér rétt til að skoða vöruna og meta hvort um framleiðslugalla sé að ræða.
Vara telst ekki gölluð ef skemmd eða breyting á ástandi stafar af slysi, rangri notkun, vanrækslu, eðlilegu sliti, raka, efnum, ilmvatni, snyrtivörum eða annarri meðferð sem er ekki í samræmi við umhirðu leiðbeiningar.
14. Ábyrgð og ending vara
Ábyrgð vegna galla fer samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003.
Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er 2 ár frá afhendingu vöru, enda sé galli ekki rakinn til eðlilegs slits, rangrar notkunar, slyss eða vanrækslu. Neytandi þarf að tilkynna um galla innan hæfilegs tíma frá því að hann varð galla var.
Ábyrgð Dúfu nær til framleiðslugalla, en ekki til skemmda sem rekja má til slysa, rangrar meðferðar, eðlilegs slits, raka, efna, ilmvatns, snyrtivara eða litabreytinga vegna notkunar eða aldurs.
Húðun, gylling og yfirborðsáferð getur breyst með tímanum eftir notkun, húðgerð og umhirðu. Slíkt telst almennt eðlilegt slit en ekki framleiðslugalli.
15. Umhirða skartgripa
Til að lengja líftíma skartgripa mælum við með að taka þá af fyrir sturtu, sund, líkamsrækt, svefn og aðra notkun þar sem þeir geta komist í snertingu við raka, hita, svita eða efni.
Forðist að skartgripir komist í snertingu við ilmvatn, krem, hárvörur, hreinsiefni og aðrar snyrtivörur.
Geymið skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka, þegar þeir eru ekki í notkun.
16. Þjónusta og samskipti
Ef upp kemur vandamál með pöntun, afhendingu, skil eða vöru má hafa samband við okkur á: info@dufa.is
Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
17. Persónuvernd
Dúfa leggur áherslu á að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina.
Við vinnum þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að afgreiða pantanir, taka við greiðslum, annast afhendingu, veita þjónustu og uppfylla lagalegar skyldur, svo sem bókhaldsskyldu.
Þær upplýsingar sem unnið er með geta meðal annars verið nafn, netfang, símanúmer, afhendingar- og greiðsluheimilisfang, upplýsingar um pöntun og samskipti vegna þjónustu.
Greiðsluupplýsingar eru unnar í gegnum örugga greiðsluþjónustu og Dúfa varðveitir ekki kortaupplýsingar viðskiptavina.
Til að geta afgreitt pantanir kunnum við að miðla nauðsynlegum upplýsingum til þjónustuaðila, svo sem Shopify, greiðsluþjónustuaðila, flutningsaðila, bókhaldsþjónustu og annarra aðila sem koma að rekstri vefverslunarinnar.
Við seljum ekki persónuupplýsingar viðskiptavina til þriðja aðila.
Vefurinn getur notað vafrakökur og önnur mælitól, svo sem Google Analytics og Meta Pixel, til að tryggja virkni síðunnar, greina notkun og bæta upplifun viðskiptavina. Notkun mæli- og vafrakaka fer eftir samþykki notanda þegar þess er krafist.
Viðskiptavinir eiga rétt á að óska eftir aðgangi að eigin persónuupplýsingum, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu, eftir því sem við á samkvæmt lögum.
Fyrirspurnir vegna persónuverndar má senda á info@dufa.is.
18. Úrræði og lausn ágreinings
Dúfa leitast við að leysa öll mál með góðri þjónustu og skjótum viðbrögðum.
Ef ágreiningur kemur upp er viðskiptavini bent á að hafa fyrst samband við okkur á info@dufa.is.
Takist ekki að leysa málið getur neytandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sem er sjálfstæð og óháð nefnd sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda vegna kaupa á vörum og þjónustu. Vefslóð á vefsíðu nefndarinnar er eftirfarandi: www.kvth.is.
19. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir skulu túlkaðir í samræmi við íslensk lög.
Ef ágreiningur verður ekki leystur með samkomulagi eða fyrir kærunefnd, má reka málið fyrir íslenskum dómstólum í samræmi við íslensk lög.
20. Um Dúfu
Dúfa er rekin af og í eigu L44 ehf.
Kt. 670819-1240
VSK nr. 135710
Sími: 772-1531
Heimilisfang: Selásbraut 98, 110 Reykjavík.
21. Breytingar á skilmálum
Dúfa áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum, til dæmis vegna breytinga á lögum, reglum, þjónustu eða starfsemi.
Nýjasta útgáfa skilmálanna er birt á vef Dúfu hverju sinni.
Síðast uppfært: 5.maí 2026